Já, það er nú málið, það er lítið sem ekkert að hafa úr draftinu fyrir lið sem halda sér ofarlega í úrvalsdeild. Ég set 0 kall í draftið, því að ég veit að þótt ég myndi ná að sjá hvern einasta leikmann, þá er ekki séns að ég myndi fá neinn almennilegan.
En já, það er líka rétt að framboð á íslenskum leikmönnum er ekki það mikið að það sé hægt að spila heilu liði úr íslendingum, allavega ekki keppnishæfu liði. Reyndar verð ég að minnast á MS#1 hér og taka hattinn ofan fyrir honum, en hann er búinn að koma sér upp ansi sterku liði sem samanstendur aðallega af íslendingum. Ég vil endilega sjá hann aftur í úrvalsdeild með þennan her sinn.