BuzzerBeater Forums

Ísland - I.1 > Íslenskir Leikmenn

Íslenskir Leikmenn

Set priority
Show messages by
From: andrip
This Post:
22
175075.1
Date: 02/18/2011 10:30:47
Overall Posts Rated:
4444
Ég hef ekkert að gera, svo ég ákvað að taka saman smá tölfræðilegar upplýsingar um íslenska leikmenn í úrvalsdeild.
Klukkan 15:00 þann 18. febrúar 2011 er 191 leikmaður í 14 liðum í úrvalsdeild. Þá tek ég ekki með Kormák og Icelandia, þar sem þau eru hætt að spila leiki.

13,64 leikmenn eru að meðaltali í hverju liði.

Af þessum 191 eru 69 íslenskir leikmenn í deildinni eða 36%. Sem þýðir þá væntanlega að 64% leikmanna eru af erlendu bergi brotnir.

Þau lið sem hafa hæst hlutfall íslenskra leikmanna eru:

Húnarnir 9/14 --- 64%
Svalbó City 8/14 --- 57%
Olafur Team 7/14 --- 50%
Mumbai Maestro 7/15 --- 46%
Skytturnar 7/15 --- 46%

Í þessum tölum eru auðvitað innifaldir bévítans ræflar og draftaðir óþjálfaðir aumingjar sem önnur lið hafa mögulega losað sig við, við fyrsta tækifæri.

Þessvegna tel ég að hér sé líka við hæfi að benda á álitlega íslendinga í liðunum. Nú er ég ekkert að þykjast vita neitt betur en aðrir, en að mínu mati eru í deildinni 25 "álitlegir" íslendingar. Semsagt íslenskir leikmenn sem hafa fengið einhverja þjálfun af viti. Þessir leikmenn eru:

Heimir Þórsson (FB Böðvar), Aðalgeir Narfason, Anton Sveinsson, Hallur Marrason (Mumbai Maestro), Þormóður Árnason, Hreinn Konráðsson, Ingólfur Marínósson, Ríkharður Eymundsson (Svalbó City) Hákon Jónasson, Jónbjörn Ivansson (tanginn), Ólfur Stefánsson (Valletta Raptors), Veturliði Snorrason, Kolbjörn Þórsson (Olafur Team), Valgeir Steinþórsson, Andri Eðvaldsson, Steinn Ellertsson, Kolbeinn Vermundsson (Húnarnir), Ísólfur Ólafsson, Guðmundur Gestsson, Kristvarður Vernharðsson (Skytturnar), Herleifur Aronsson, Aðalsteinn Ívarsson (The Tortillas), Úlfur Þorvaldsson (Team Masabas), Tumi Hergeirsson, Tómas Níelsson (Reykjavik Tigers)

Ég ber mikla virðingu fyrir þeim liðum sem tefla fram íslenskum leikmönnum, og vona innilega að við höldum áfram að framleiða íslenska leikmenn fyrir landsliðið okkar svo að við getum náð árangri með því.

Að lokum vil ég þakka lesturinn, sure, þetta endaði nú bara á upptalningu á leikmönnum sem ég finnst persónulega áhugaverðir, og ef einhverjum fannst þessi lestur vera tímasóun og langar til að lemja mig, þá má sá hinn sami einfaldlega éta úldinn hund fyrir mér, mér er bara alveg sama.

Góðar stundir,

Andrip



Last edited by andrip at 02/18/2011 10:35:49

From: maggig

This Post:
00
175075.2 in reply to 175075.1
Date: 02/18/2011 11:24:28
Overall Posts Rated:
44
ég myndi nu vilja sá hærri prósentu af íslenskum leikmönum í deildinni þá væri mun skemmtilegra.

en hef eitt seigja ég hef yfirleitt verið að þjálfa íslendinga þó ég sé bara með tvö íslendinga í talninguni en þó kolbeinn sé skráður hjá þér þá er hann algerlega mín ræktunn ;)

This Post:
00
175075.3 in reply to 175075.2
Date: 02/18/2011 17:38:57
Overall Posts Rated:
99
það væri gaman að hafa fleiri íslendinga en það er ansi erfitt þar sem maður getur náttúrulega ekki þjálfað alla sína menn og framboð á góðum íslendingum til sölu er alltaf ansi lágt. Annars er ég alltaf að líta í kringum mig eftir ungum efnilegum litlum Íslending til að þjálfa upp, framboðið hefur bara því miður verið ekkert:(

This Post:
00
175075.4 in reply to 175075.3
Date: 02/18/2011 19:12:22
Overall Posts Rated:
1717
já núna undanfarið hefur fátt verið um efnilega íslendinga með hátt potential.. slakt þetta system að lata ekki einhverja flotta í þetta blessaða draft dót hérna..

L James
From: Noteboom

This Post:
00
175075.5 in reply to 175075.1
Date: 02/18/2011 19:42:45
Skytturnar
ESL
Overall Posts Rated:
1010
Flott grein! Því miður neyddist ég til að selja einn mjög mikilvægan félaga Guðmundar, hann Pétur. Hins vegar er ég að þjálfa einn í viðbót, Orri heitir kappinn. En það er ekki létt þegar menn eru ekki með getuna til að spila deildarleikina.

Sportssend.com
This Post:
00
175075.6 in reply to 175075.5
Date: 02/18/2011 22:01:15
Overall Posts Rated:
1717
er ég sá eini sem sér ekki þennann orra?? :S

sé 19 ára gutta sem heitir ormur.

Last edited by LA-L James at 02/18/2011 22:01:52

L James
This Post:
00
175075.7 in reply to 175075.6
Date: 02/19/2011 06:52:11
Skytturnar
ESL
Overall Posts Rated:
1010
Já, sorry, skrifaði rangt nafn. Ekkert sérstakt efni en er með ákveðna hluti sem hægt er að vinna úr til lengri tíma. En draftið hefur engu skilað í langan tíma svo ég er að reyna að búa til eitthvað sem út úr því kemur.

Sportssend.com
From: andrip

This Post:
11
175075.8 in reply to 175075.7
Date: 02/19/2011 08:31:05
Overall Posts Rated:
4444
Já, það er nú málið, það er lítið sem ekkert að hafa úr draftinu fyrir lið sem halda sér ofarlega í úrvalsdeild. Ég set 0 kall í draftið, því að ég veit að þótt ég myndi ná að sjá hvern einasta leikmann, þá er ekki séns að ég myndi fá neinn almennilegan.

En já, það er líka rétt að framboð á íslenskum leikmönnum er ekki það mikið að það sé hægt að spila heilu liði úr íslendingum, allavega ekki keppnishæfu liði. Reyndar verð ég að minnast á MS#1 hér og taka hattinn ofan fyrir honum, en hann er búinn að koma sér upp ansi sterku liði sem samanstendur aðallega af íslendingum. Ég vil endilega sjá hann aftur í úrvalsdeild með þennan her sinn.

This Post:
11
175075.9 in reply to 175075.8
Date: 02/19/2011 21:13:27
Overall Posts Rated:
3737
Skemmtileg lesning, það máttu eiga. Gaf þér bolta fyrir þennan pistil, menn mættu alveg vera duglegri við það að gefa bolta ef mönnum líkar við lesninguna. Bæði hvetur það pistilhöfund til að halda áfram og jafnframt koma kannski fleiri pennar framm með sín skrif.

Ég vil einnig þakka fyrir þá athygli sem þú sýnir liði mínu. Það má segja að ég hafi umturnað liðinu mínu og er síðasti leikmaðurinn sem ég mun og vil selja á sölulista núna. þá mun ég bara eiga eftir einn erlendan leikmann sem ég mun halda í liðinu svo lengi sem aldur hans leyfir. Hann Mack mun vera minn "bosman" leikmaður.

Mér líður alveg rosalega vel með þennan íslendinga her minn eins og andrip kallar liðið mitt, og er ég þakklátur fyrir að hafa haft tök á því að fá þessa leikmenn til mín. Í framtíðinni mun ég halda áfram að styrkja liðið mitt með íslendingum í takt við það að þjálfa íslendinga líka. Ég tel mig vera með 3 gæða leikmenn í þjálfun en mögulega þyrfti ég að skipta einum leikmanni út þar sem tveir munu enda í sömu stöðu. Þess vegna hefur mér dottið í hug og sú hugmynd fengið byr undir báða vængi þegar ég las þennan pistil, að skipta á leikmönnum. Þar sem það eru örugglega fleiri íslendingar sem vilja að liðin sín sé skipuð íslendingum og því væri hægt að "trade-a" leikmönnum sín á milli. En auðvitað geta alltaf komið utan aðkomandi stjórar og reynt að kaupa þennan leikmann og getur það gert okkur erfiðara fyrir vik. En þó held ég að menn séu til að borga 100þús kall meira fyrir íslending en samskonar útlending þannig að það verður ekkert stórvægilegt vandamál. Það sem mun vera vandamál er að fá íslensku stjórana til að samþykkja að selja leikmanninn sinn. Ég veit það að ég mun ekki selja hvern sem er frá mér. Þó hvet ég alla þá sem hafa áhuga á íslenskum leikmönnum að hafa samband við þann stjóra og fá að vita meira um leikmanninn og hvort möguleiki sé á sölu eða jafnvel skiptum ef menn hafa leikmenn til að skipta.


This Post:
00
175075.10 in reply to 175075.9
Date: 02/20/2011 04:17:09
Overall Posts Rated:
99
ekkert vandamál að fá mig til að selja þér Anton og Aðalgeir. Eigum við að segja ca. 20 milljónir fyrir hvorn?

This Post:
00
175075.11 in reply to 175075.10
Date: 02/20/2011 06:11:10
Overall Posts Rated:
3737
hahaha, frekar bíð ég eftir að þú fáir leið á leiknum og hættir. held ég nái aldrei að safna í þá upphæð.